Home About us Products Services Contact us Bookmark
:: wikimiki.org ::
Matarprjónarlöndin Fjögur

Matarprjónarlöndin fjögur

Matarprjónalöndin fjögur eru Kína, Japan, Kórea og Víetnam og er þar verið að vísa í að þessi fjögur lönd eru þau einu þar sem matarprjónar eru notaðir í stað annara áhalda eins og hnífs og gaffals. Flokkur:Japanskur matur Flokkur:Kínverskur matur Flokkur:Kóreskur matur

Kína

Kína (hefðbundin kínverska: 中國, einfölduð kíverska: 中国, Hanyu Pinyin: Zhōngguó, Wade-Giles: Chung-kuo) er menningarsvæði á meginlandi Austur-Asíu ásamt nokkrum eyjum undan ströndinni sem síðan 1949 hefur verið skipt á milli Alþýðulýðveldisins Kína (nær yfir meginlandið auk Hong Kong og Makaó) og Lýðveldisins Kína (nær yfir Tævan auk nærliggjandi eyja). Kína er ein af elstu samfelldu siðmenningum á Jörðinni og ritkerfið sem þar var notað er það elsta sem var í sífelldri notkun. Saga þess hefur einkennst af stríði og friði til skiptis og blóðugum erjum mismunandi keisaraætta. Nýlendustefna Evrópumanna, innrás Japana og borgarastríð bitnaði illa á Kína á 19. og 20. öld og stuðlaði að núverandi skiptingu landsins. Íbúar svæðisins telja vel yfir einn milljarð og eru flestir af þjóð Han Kínverja. Tungumál þeirra er kínverska sem notast að mestu við sama ritmálið en skiptist í margar talmáls-mállýskur. Flokkur:Kína Flokkur:Austur-Asía ja:中国 zh-min-nan:Tiong-kok ms:China simple:China zh-min-nan:Tiong-kok

Japan

Japan (Nippon/Nihon 日本 (táknin merkja sól og rætur/uppruna), þýðir bókstaflega „Uppruni sólarinnar“), er landamæralaust land í Austur-Asíu, staðsett austur af Kóreuskaga og vestarlega í Kyrrahafinu. Nafnið er oft þýtt „Land rísandi sólar“ og er sú þýðing ættuð úr kínversku. Áður en Japan hafði nokkur samskipti við Kína, var landið kallað Yamato (大和). Wa (倭) var nafnið sem Kínverjar notuðu snemma þegar þeir töluðu um Japan. Japan samanstendur af röð eyja, stærstar þeirra eru frá norðri til suðurs, Kyūshū (九州), Shikoku (四国), Honshū (本州, stærsta eyjan), og Hokkaidō (北海道).

Nafnsifjar

Japan heitir á japönsku Nippon eða Nihon, bæði heitin eru skrifuð eins á japönsku ritmáli. Japanska nafnið Nippon er fyrir formlega notkun, s.s. á gjaldmiðli, frímerkjum og alþjóðlegum íþróttamótum. Nihon er hversdagslegt heiti Japans sem Japanar nota. Sem dæmi, Japanar kalla sig Nihonjin og tungumál sitt Nihongo: sem bókstaflega þýðir „japanskt fólk“ og „japönsk tunga“. Í Japan nú til dags, hefur nafnið Nippon meiri þjóðernissinnaða merkingu, notað meira af eldra fólki, meðan að Nihon er notað dagsdaglega af mestum hluta þjóðarinnar. Heiti Japans á evrópskum tungumálum (þar með talið íslensku) barst með verslunarleiðum til vesturs. Nafn Japans kom fyrst fyrir í skjölum frá Marco Polo sem Cipangu úr mandarín. Hins vegar er Japan á kantónsku Jatbun, og þaðan er vestræna heitið líklegast komið. Á malajísku varð kantónska heitið Japang og hafa Portúgalskir kaupmenn rekist á það í Malakka á 16. öld. Talið er að portúgalskir kaupmenn hafi borið nafnið til Evrópu. Það var fyrst skráð á ensku sem Giapan. Nihonkoku (日本国), er formlegt heiti Japans og þýðir í raun „japanska ríkið“.

Saga Japans

Fornleifarannsóknir benda til þess að búseta manna í Japan hafi hafist fyrir 500.000 árum, á fyrri hluta fornsteinaldar. Á ísöldum síðustu milljón ára hefur Japan tengst meginlandi Asíu (við Sakhalin í norðri og líklegast Kyūshū í suðri), sem hefur auðveldað búferlaflutninga manna, dýra og plantna til Japanska eyjaklasans, frá því svæði sem er nú Kína og Tævan. Við lok síðustu ísaldar og með heitara loftslagi tók Jomon-tímabilið (縄文時代) við u.þ.b. 14.500 f.Kr. Leirker frá Jomon tímabilinu í Japan eru meðal þeirra elstu í heiminum. Þegar tók að líða á Jamon tímabilið tóku að myndast smáþorp víða í Japan. Samkvæmt klassískri goðafræði Japans, var Japan sett á laggirnar á 7. öld fyrir Krist af Jimmu keisara, sem samkvæmt goðafræðinni á ættir sínar að rekja til guða. Um 300 fyrir Krist tók við Yayoi-tímabilið (弥生時代) sem markaði endalok Jomon tímabilsins. Tímabilið einkenndist af áhrifum frá asíska meginlandinu, til dæmis barst til Japans þekking á hrísgrjónarækt og þekking á bronsgerð. Jafnframt voru miklir búferlaflutningar frá mörgum hlutum Asíu til Japans á því tímabili. Almennt er samt talið víst að einhver tímann um 300 e.Kr. hafi Yamatoættin sameinað eyjarnar Honshū, Shikoku, Kyūshū og hugsanlega einhvern hluta Kóreuskaga og að það hafi verið upphafið að sameiningu Japans. Á 5. og 6. öld tóku Japanir upp kínverska ritkerfið og búddisma, fyrst gegnum Kóreuskaga en síðar beint frá Kína. Keisararnir voru aðeins að nafninu til stjórnendur, en gegndu í raun aðeins trúarlegu hlutverki. Raunverulegt vald var í höndum hirðar aðalsmanna sem höfðu arfgeng lénsréttindi. Árið 794 tók við Fujiwara fjölskyldan og Kammu keisari, hann reisti nýja höfuðborg (áður var Nara höfuðborgin), Heian-kyo (heitir nú Kyoto). Fujiwara fjölskyldan efldi veldi sitt með einokun og gifti meðlimi ættarinnar inn í keisarafjöldskylduna til að halda áfram völdum. Það gerðist iðulega að keisarinn sagði af sér og útnefndi yngri mann, ættingja Fujiwara, keisara. Fyrrverandi keisari gekk svo í klaustur og stjórnaði á bakvið tjöldin. Slíkur háttur var á lengi vel, en upp úr 900 fóru margir aðalsmenn, sem ekki höfðu mikil völd innan hirðarinnar, að hætta að sætta sig við hætti Fujiwara fjölskyldunar og settust að í héruðum þar sem þeir tóku sér völd og eignuðu sér landsvæði. Til að verja eigin landsvæði mynduðu þeir bændaheri, sem seinna kölluðust samúræjar. Þetta varð tilefni margra bardaga og hafði mikil áhrif á keisaraveldið. Loks árið 1185, sigruðu bræðurnir Yoshitsune og Yoritomo úr Minamoto fjölskylduni Taira fjölskylduna (sem þá var orðin voldugasta fjölskylda Japans) eftir langar erjur, og komu á sjogúnstjórn (herríkisstjórn, 幕府). Yoshitsune varð fyrsti einráði sjogúninn. Sjogúnstjórnin bar heitið Kamakura Sjogúnstjórnin (鎌倉幕府). Yoshitsune gerði ýmislegt til að bæta hag samúræja sinna og átti mikinn þátt í að skapa menninguna í kringum þá. Erfingjar Yoshitsune voru samt síðar meir aðeins einráðir opinberlega, en Hoju fjölskyldan stjórnaði í raun öllu á bakvið tjöldin. Þetta stjórnskipulag hélst lengi vel, eða allt til ársins 1854 þegar Bandaríkjamenn voru farnir að beita Japan þrýstingi til að opna hafnir sýnar fyrir erlendum kaupmönnum, en Japan hafði þá verið einangrað síðan snemma á 17. öld. Á Meijitímabilinu (1868 til 1912) voru lénsréttindi afnumin og Japanska ríkið tók á sig mynd kapítalískra ríkja í Evrópu.

Stjórnmál

Í Japan er stjórnarskrárbundin konungsstjórn með tveggja deilda þingi, sem kallast Kokkai (国会). Japan hefur konunglega fjölskyldu, þar sem keisarinn er hæst settur en samkvæmt núverandi stjórnarskrá hefur hann engin raunveruleg völd heldur þjónar hann eingöngu formlegu hlutverki þjóðhöfðingja. Framkvæmdavaldið, sem heyrir undir Kokkai, er í höndum ríkisstjórnar sem samanstendur af forsætisráðherra og öðrum ráðherrum, sem verða að vera almennir borgarar. Forsætisráðherrann er meðlimur í Kokkai. Forsætisráðherra hefur vald til að ráða og reka ráðherra, en ráðherrarnir þurfa flestir að vera meðlimir í Kokkai.

Héraðsskipan Japans

forsætisráðherra Japan er skipt upp í 47 héruð (raðað eftir ISO 3166-2):

- Hokkaidō
- Aomori
- Iwate
- Miyagi
- Akita
- Yamagata
- Fukushima
- Ibaraki
- Tochigi
- Gunma
- Saitama
- Chiba
- Tókýó
- Kanagawa
- Niigata
- Toyama
- Ishikawa
- Fukui
- Yamanashi
- Nagano
- Gifu
- Shizuoka
- Aichi
- Mie

- Shiga
- Kyoto
- Osaka
- Hyogo
- Nara
- Wakayama
- Tottori
- Shimane
- Okayama
- Hiroshima
- Yamaguchi
- Tokushima
- Kagawa
- Ehime
- Kochi
- Fukuoka
- Saga
- Nagasaki
- Kumamoto
- Oita
- Miyazaki
- Kagoshima
- Okinawa
Röðin á héruðunum er frá norðri til suðurs, sem er almennt notuð í Japan.

Landafræði

Okinawa Japan er stórt eyríki sem teygir sig eftir hluta af Kyrrahafsströnd Asíu. Stærstu eyjarnar heita Hokkaidō, Honshū (stærst og fjölmennust), Shikoku, og Kyūshū. Ryukyu eyjaklasinn teygir sig yfir 1000 km til suðvesturs frá Kyūshū alla leið til Tævan. Að auki eru um 3000 smærri eyjar sem tilheyra Japan. 73% landsins telst sem fjalllendi, fjallgarðar liggja eftir eyjunum endilöngum, venjulega frá norðri til suðurs. Hæsta fjallið er Fuji fjall sem er 3.776 metra hátt og er virkt eldfjall. Hið takmarkaða flatlendi er mjög þéttbýlt, Tókíó og nágrannaborgir mynda þannig langstærsta samfellda þéttbýlissvæði á jörðinni með yfir 33 milljónir íbúa. Japan er staðsett á hinum svonefnda eldhring sem umlykur Kyrrahaf og er mjög virkt jarðskjálfta og eldfjalla svæði. Stórir jarðskjálftar geta riðið yfir hvar sem er í Japan og má reikna með nokkrum slíkum á hverri öld. Á 20. öldinni urðu verstu skjálftarnir annarsvegar árið 1923 í nágrenni Tókíó sem kostaði 140.000 mannslíf og svo aftur 1995 við Kobe þar sem yfir 6000 manns létust. Jarðhiti er nokkur í Japan og víða má finna heitar uppsprettur og í kringum þær sumar hafa verið byggð böð og heilsuhæli, ekki ósvipað Bláa lóninu á Íslandi.

Tengt efni


- Japönsk menning
- Matarprjónar
- Hokusai

Tenglar


- [http://www.japan-guide.com/ Japan-Guide.com] Allt milli himins og jarðar um Japan
- [http://www.cia.gov/cia/publications/factbook/geos/ja.html CIA Factbook: Japan] Flokkur:Japan Flokkur:Konungsríki als:Japan ja:日本 ko:일본 ms:Jepun simple:Japan th:ประเทศญี่ปุ่น zh-min-nan:Ji̍t-pún


Land

Land táknar oftast ríki eða viðurkennt svæði, sem heitir tilteknu nafni. Flest lönd eru afmörkuð hvert frá öðru með landamærum, sem hafa verið afskaplega breytileg og hreyfanleg í tímans rás. Sum lönd eru umlukin sjó eingöngu og hafa þá engin eiginleg landamæri. Þannig háttar til dæmis um Ísland og Japan. Önnur liggja að sjó að hluta og að öðrum löndum að hluta. Sem dæmi slíks má nefna Noreg og Danmörku. Þá eru einnig lönd sem eru algjörlega landlukt, en þau eiga hvergi land að sjó og allt umhverfis þau eru landamæri, sem liggja að einu eða fleiri öðrum ríkjum. Slík lönd eru sem dæmi Sviss og Tékkland. Til eru tvö lönd í veröldinni, sem kalla mætti tvílandlukt, en þau eru umkringd löndum, sem hvergi liggja að sjó. Þessi tvö lönd eru Úsbekistan og Liechtenstein. Í annarri merkingu er orðið „land“ notað um svæði almennt án vísunar til heitis sérstaklega. Sem dæmi um slíka notkun orðsins mætti taka þessa setningu: „Í Himalayafjöllum liggur land að jafnaði hærra en annars staðar á jörðunni.“ Þriðja merking orðsins er stórt eða smátt svæði á jörðinni, sem stendur upp úr sjó. „Land fyrir stafni!“ Að síðustu mætti nefna þá merkingu orðsins sem vísar til eignar tiltekins manns eða lögaðila. „Möðrudalur á Fjöllum er ein landmesta jörð á Íslandi.“ Flokkur:Landafræðihugtök ja:国

Matarprjónar

Matarprjónar eru pör af litlum aflöngum prjónum sem eru hefðbundin mataráhöld í Kína, Japan Kóreu og Víetnam („Matarprjónalöndunum fjórum“). Þeir eru alla jafnan úr bambus þar sem það er bragðlaust, ódýrt og algengt efni sem auðvelt er að kljúfa auk þess sem það er hitaþolið, en einnig er algengt að þeir séu úr viði, málmi, beini, hornum dýra, agati, jaða, postulíni, kóral og á vorum dögum úr plasti. Aðalgerðir matarprjóna eru þrjár: Kínverskir prjónar, sem eru langir viðarprjónar með ávala enda; japanskir, sem eru stuttir viðarprjónar, einnig með ávala enda og kóreskir, sem eru stuttir málmprjónar með þverskorna enda, þó viðarútgáfur séu einnig notaðar. Þar að auki skiptast allir prjónar í tvo flokka: einnotawaribashi“ prjóna og svo hefðbunda prjóna — eða þá sem ætlaðir eru til langvarandi notkunar.

Nafn

Nafn matarprjóna á mandarín, „kuàizi“ (筷子) eða „kuài'er“ (筷兒) þýðir „bambusáhöld til að borða hratt“. Þeir heita hinsvegar „zhù“ (箸) í klassískri kínversku og er tákn þeirra þar mögulega hljóðtákn og gefur það til kynna að þeir séu hlutur gerður úr bambus. Kínverska orðið „zhù“ barst svo til Japan og er þar borið fram „hashi“ í kunyomi framburði, en er nær rótinni með „zu“ í onyomi framburði. Kórea hinsvegar notar sitt eigið orð jeotgarak (젓가락) og er það orð hvorki ættað úr japönskukínversku. Í víetnömsku er svo orðið „đũa“ notað.

Hönnun

Hönnun prjónanna er afar einföld, einfaldlega stutt, þunn prik með þverskurðarflatarmál minna en einn fersentimetri, lengd mismunandi. Annar endinn er svo aðeins þynnri en hinn og er það sá endi sem snýr að matnum. Notkun þeirra er list, sem getur tekið allnokkurn tíma að ná tökum á. Matreiðsla í Austur-Asíu, sem er það svæði sem þeir eru aðallega notaðir á, er sniðin að notkun þeirra. Kjöt, grænmeti, núðlur og annað í matnum er skorið niður, svo auðvelt sé að taka upp bitana með prjónunum og hrísgrjón eru elduð þannig að þau festist saman, ólíkt þeim hrísgrjónum, sem algeng eru annars staðar í heiminum, einmitt svo auðvelt sé að taka upp bita af þeim með prjónunum. Hefðbundnir japanskir matarprjónar eru venjulega um 22 sentimetrar að lengd en einnota waribashi prjónar eru um tveimur sentimetrum styttri, kínverskir prjónar eru svo ögn lengri eða um 25cm.

Saga matarprjóna

Prjónarnir eru taldir hafa verið þróaðir fyrir um það bil 3000-5000 árum í Kína (nákvæmara ártal en það þekkist ekki). Þeir höfðu svo þegar komið var fram á 4. öld dreifst frá Kína á það svæði sem í dag er Japan, Kórea og Víetnam. Á 10. öld var farið að búa til matarprjóna í tveimur hlutum í stað eins hluta með samanliggjandi svæði á toppnum, sem þurfti svo að brjóta við notkun, prjónar í gamla stílnum eru þó enn gerðir og þá sérstaklega notaðir sem einnota. Líklega má rekja uppruna þeirra til þess að brjóta greinar af trjám til að borða með og ennfremur þess að mikil hungursneyð og fólksfækkun varð um 4. öld f.Kr., sem neyddi fólk til að spara orku. Var matur þá skorinn í litla búta til að hægt væri að elda hann hraðar og með minni eldivið. Talið er að kínverski heimspekingurinn Konfúsíus sem uppi var á 65. öld f. Kr. hafi haft umtalsverð áhrif á aukna notkun mataprjóna. Hann ráðlagði fólki að nota ekki hnífa við matarborðið þar sem þeir myndu minna það á sláturhúsið og væru þar með og ofbeldisfullir til að hægt væri að nota þá þar. Verkfæri sem minna á matarprjóna hafa auk þess verið grafin upp við fornleifagröft í Megiddo í Ísrael og voru þeir í eigu innrásarhers Skiþíumanna, sem réðst inn í Kanaan á tíma Móses og Jósúa. Uppgötvun þessi sýnir, hve mikil vöruskipti milli miðausturlanda og Austurlanda fjær voru á þessum tíma. Matarprjónar voru einnig algengir heimilismunir Uyghúrmanna á Mongólsku sléttunum á 5.7. öld. Í Japan voru matarprjónar upprunalega álitinn verðmætur varningur, sem var eingöngu notaður í trúarlegum athöfnum. Japanir voru svo fyrstir til að lakka prjónana á 16. öld. Við það urðu þeir örlítið sleipari en mun endingarbetri. Japanir fundu einnig upp einnota matarprjóna sem þeir kalla „waribashi“ árið 1878.

Notkunarleiðbeiningar

Haldið er á prjónunum milli þumalfingurs og hinna fingra hægri handar. Þeir eru svo notaðir sem tengur til að taka upp mat sem borinn er á borð, niðurskorinn til að gera það auðveldara. Þeir eru þá einnig notaðir sem áhöld til að sópa hrísgrjónum eða smáum matarögnum inn í munninn úr skálum. Athuga skal hinsvegar að flóknar siðareglur ríkja um notkun þeirra og að þær eru mismunandi eftir löndum. Langalgengast er að haldið sé á prjónunum í hægri hönd, jafnvel af örvhentum. Ástæðan fyrir þessu er sú, að í Austur-Asíu sem og í múslimalöndum er það vinstri höndin „óhreina höndin“ sem notuð er á salerninu, þar sem sú hægri er notuð til að matast með. Nú á dögum hefur hinsvegar verið slakað á þessum óskrifuðu reglum samfélagsins og er þar með hægt að nota matarprjónana með báðum höndum án þess að vera álitinn dóni. dóni # Haltu öðrum prjóninum í lófanum og láttu enda hans liggja við rót þumalfingurs. # Notaðu baugfingur til að halda við neðri hluta hans. # Haltu prjóninum með þumlinum og ýttu honum upp með baugfingri, og ættir þú nú að halda honum stöðugum og kyrrum í hendi þér. # Notaðu framenda þumalfingurs, vísifingurs og löngutangar til að halda á hinum prjóninum eins og haldið er á penna. # Láttu enda prjónanna mætast. # Hreyfðu prjónana upp og niður, þeir ættu með æfingu að virka sem töng. # Meðan verið er að æfa sig í notkun prjónanna er gott að byrja á að halda á þeim um miðju og færa sig svo aftur þegar meira vald fæst yfir þeim eins og sést á myndinni.

Almennar siðareglur


- Matarprjónarir ættu aldrei að snerta munninn og er það einnig álitinn dónaskapur að sjúga enda þeirra.
- Ef það eru skeiðar eða matarprjónar fyrir alla á borðinu skaltu nota hana og þá til að ná í mat á diskinn þinn áður en þú byrjar að nota skeiðina og prjónana þína.
- Eftir að þú hefur tekið upp mat með prjónunum er hann þinn og þú skalt ekki setja hann aftur á diskinn.
- Það gætu verið góðir siðir að taka up besta matinn og gefa gestunum þínum. Gerðu þetta samt með varúð, því að sumt fólk gæti verið á einhverskonar sérstökum matarkúr og að velja mat fyrir gestina þína gæti verið eitthvað sem þeim er ekki að skapi. Auk þess gæti það verið góð hugmynd af hreinlætisástæðum að nota ekki prjónana til að gera þetta, ef þú ætlar hinsvegar að nota þá, snúðu þeim þá við og notaðu hinn endann.
- Geymdu aldrei prjónana með því að stinga þeim ofan í hrísgrjónaskál með framendann niður. Þetta minnir á gjafir til forfeðranna og er álitin argasta óvirðing.

Kínverskar siðareglur


- Maturinn er venjulega búinn til á þann hátt að hver biti er skorinn niður eftir því með hverju á að borða hann, ef eitthvað er of lítið til að borða það með matarprjónum þýðir það að það eigi ekki að gera það.
- Halda skal á hrísgrjónaskálinni við munninn og skófla hrísgrjónum inn með matarprjónum. (Ath. að siðareglur kínverja stangast í þessum efnum algerlega á við siðareglur japana, líklega vegna þess að japönsk hrísgrjón límast saman og geta þar með verið tekin upp í kögglum.) Ef hrísgrjónin eru borin fram á diski (þau eru oftast borin fram í skál) eins og algengt er á vesturlöndum skulu þau borðast með gaffli eða skeið. Sérstaklega vegna þess að það tekur alllangan tíma að taka þau upp eitt og eitt.
- Stingdu aldrei prjónunum ofan í hrísgrjónaskál þar sem sá verknaður er hluti af hefðbundinni jarðarfararathöfn.

Japanskar siðareglur

Almennt skal nota matarprjóna til þess að borða og ekki til neins annars, það að benda eða tákna eitthvað með þeim, tromma með þeim eða kalla á athygli er dónaskapur.
- Ekki grafa eftir mat, byrjaðu að borða efst og veldu það sem þú vilt borða áður en þú tekur það upp (ekki pota í það áður en þú velur í leit að einhverju innihaldi).
- Aldrei stinga í mat með matarprjónum.
- Aldrei stinga matarprjónum ofan í hrísgrjónaskál (eða neitt annað, en sérstaklega ekki hrísgrjón, þar sem sá verknaður er hluti af jarðarfararathöfn).
- Ekki færa diska með prjónunum.
- Ekki sleikja eða sjúga þá.
- Ekki missa mat af þeim.
- Ekki má skófla mat upp í þig með matarprjónum (ólíkt í Kína þar sem maður gerir það þegar maður borðar hrísgrjón). Súpudiska má færa upp að munninum en engir aðrir diskar eru færðir nálægt munninum í Japan.
- Aldrei snerta mat í matardiski, sem er ekki bara fyrir þig, með aflanga enda prjónanna, af hreinlætisástæðum. Snúðu þeim við og notaðu hinn endann til að færa matinn yfir á þinn disk og borðaðu hann síðan, aldrei nota breiðu endana til að borða beint.
- Aldrei nota matarprjóna til að færa eitthvað á disk annars eða í skál hans (sjá Japönsk jarðarför).
- Hvíldu prjónana á þar til gerðum prjónahöldurum með mjóu endana niður þegar þeir eru ekki í notkun.

Kóreskar siðareglur


- Það er ljóst að hið litla (og stundum sleipa) ágripssvæði málmprjóna Kóreumanna gerir það mun erfiðara að borða hratt með þeim heldur en ef það væri stærra. Kóreumenn borða þar súpu og hrísgrjón með skeið — ólíkt flestum íbúum Asíulanda — þar sem prjónar voru áður notaðir, og nota þeir prjónana fyrir alla aðra rétti.

Víetnamskar siðareglur


- Hrísgrjónaskálin er færð að munninum og hrísgrjónum skóflað inn í munninn með prjónunum líkt og í Kína.
- Víetnömsk hrísgrjón festast vel saman ólíkt þeim kínversku og því er einnig hægt að taka þau upp af diskinum með prjónunum.

Heimildir


- „Chopsticks“ á „[http://www.calacademy.org/research/anthropology/utensil/chpstck.htm The history of eating utensils]“, 1. september 2004.
- „[http://www.echopsticks.org/chopsticks-history.html Chopsticks History, Chopstick history]“, 4. september 2004.

Tenglar


- [http://www.geocities.com/chinatownshop/chopsticks.html „Zen and the Art of Learning to Use Chopsticks“] eftir Ginny McWong (á ensku).
- [http://chinesefood.about.com/library/weekly/aa103198.htm „Chopsticks“ á about.com] (á ensku).
- [http://www.asianartmall.com/chopstickshistory.htm „History of Chopsticks“] (á ensku).
- [http://www.coquinaria.nl/english/recipes/chopsticks.htm „Everything on chopsticks“] (á ensku). Flokkur:Mataráhöld Flokkur:Japanskur matur Flokkur:Kínverskur matur Flokkur:Kóreskur matur Flokkur:Víetnamskur matur ja:箸 ko:젓가락 simple:Chopstick

Flokkur:Japanskur matur

Flokkur:Japönsk menning Flokkur:Matur ja:Category:日本の食文化

Flokkur:Kóreskur matur

Flokkur:Kóresk menning Flokkur:Matur ja:Category:韓国の食文化 ko:분류:한국의 요리

Greatest Hits (Run-D.M.C.)

Greatest Hits is a compliation album of Run DMC's material.

Track Listing

# King Of Rock # It's Tricky # Beats to the Rhyme # Can You Rock It Like This # Walk This Way # Run's House # Rock Box # Peter Piper # Mary, Mary # Hard Times # You Be Illin' # It's Like That # My Adidas # Sucker M.C.'s (Krush Groove 1) # You Talk Too Much # Jam-Master Jay # Down with the King # Christmas in Hollis Greatest Hits (Run-D.M.C. album) Greatest Hits (Run-D.M.C. album) Greatest Hits (Run-D.M.C. album)

Nurkowanie Reklama kaway online spielautomaten narty sowacja










































:: RELATED NEWS ::
Canale Muzza
Il Canale Muzza è una diramazione del fiume Adda. Nella parte del territorio posto ad ovest dell'Adda (compreso nel quadrilatero degli odierni paesi di Lodi, Mulazzano, Paullo e Zelo Buon Persico), venne attuato un progetto di bonifica. Dopo tale bonifica divenne disponibile, a
San Lorenzo (Santo)
io volevo notizie di san lorenzo in ecuador San Lorenzo (Laurentius in latino) fu uno dei sette diaconi di Roma, dove venne martirizzato nel 258 durante la persecuzione scatenata dall'imperatore Valeriano I nel
In hoc signo vinces
In hoc signo vinces: frase latina, dal significato letterale: «in questo segno vincerai». Il segno in questione è una croce. La leggenda vuole che Costantino il Grande, alla vigilia della battaglia decisiva contro Massenzio per il controllo dell'Impero romano, vide in sogno una croce, e udì una voce pronunciare questa frase. Decise allora di seguire il presagio, e fece dipingere sulle insegne dei suoi soldati una croce. La fras
Reincarnazione
Per reincarnazione, trasmigrazione delle anime o metempsicosi si intende la rinascita in un altro corpo dell'anima o spirito di un individuo, dopo la sua morte fisica. Essa è uno dei concetti fondamentali dell'Induismo, del Giainismo, del Sikhismo e di alcune religioni africane, così come di altre filosofie o movimenti religiosi. La maggior parte dei Est modus in rebus), questa frase risale ai filosofi scolastici medievali, come si vede anche dallo spostamento di significato di "virtus" dall'originale latino di "valore". Il suo significato è che occorre evitare gli eccessi, e cercare di trovare una via di mezzo.
In altre parole è il proverbio l’

Picea excelsa
L'abete rosso o peccio è un albero dell'ordine delle conifere, ampiamente diffuso sulla Alpi italiane, nonché nel resto d'Europa.

Morfologia

Portamento

Alto fino a 60 metri, con tronco diritto e chioma conica relativamente stretta. Il portamento può comunque differenziarsi in base all'altitudine, essendo questa una speci
Cast Away
Cas
Acid Street
Acid Street è uno strip blog creato da Condre (al secolo Andrea Ancona) nel 2004. La particolarità di questo fumetto è il surrealismo delle situazioni e dei dialoghi. I personaggi principali sono degli omini disegnati in modo molto stilizzato accompagnati dai cani, che sopravvivono anche se tagliati a metà, da oggetti parlanti e dagli extraterrestri. Quasi tutti non hanno nome, ma tutti hanno differenze mo
All Rights Reserved 2005 wikimiki.org