Home About us Products Services Contact us Bookmark
:: wikimiki.org ::
Japan

Japan

Japan (Nippon/Nihon 日本 (táknin merkja sól og rætur/uppruna), þýðir bókstaflega „Uppruni sólarinnar“), er landamæralaust land í Austur-Asíu, staðsett austur af Kóreuskaga og vestarlega í Kyrrahafinu. Nafnið er oft þýtt „Land rísandi sólar“ og er sú þýðing ættuð úr kínversku. Áður en Japan hafði nokkur samskipti við Kína, var landið kallað Yamato (大和). Wa (倭) var nafnið sem Kínverjar notuðu snemma þegar þeir töluðu um Japan. Japan samanstendur af röð eyja, stærstar þeirra eru frá norðri til suðurs, Kyūshū (九州), Shikoku (四国), Honshū (本州, stærsta eyjan), og Hokkaidō (北海道).

Nafnsifjar

Japan heitir á japönsku Nippon eða Nihon, bæði heitin eru skrifuð eins á japönsku ritmáli. Japanska nafnið Nippon er fyrir formlega notkun, s.s. á gjaldmiðli, frímerkjum og alþjóðlegum íþróttamótum. Nihon er hversdagslegt heiti Japans sem Japanar nota. Sem dæmi, Japanar kalla sig Nihonjin og tungumál sitt Nihongo: sem bókstaflega þýðir „japanskt fólk“ og „japönsk tunga“. Í Japan nú til dags, hefur nafnið Nippon meiri þjóðernissinnaða merkingu, notað meira af eldra fólki, meðan að Nihon er notað dagsdaglega af mestum hluta þjóðarinnar. Heiti Japans á evrópskum tungumálum (þar með talið íslensku) barst með verslunarleiðum til vesturs. Nafn Japans kom fyrst fyrir í skjölum frá Marco Polo sem Cipangu úr mandarín. Hins vegar er Japan á kantónsku Jatbun, og þaðan er vestræna heitið líklegast komið. Á malajísku varð kantónska heitið Japang og hafa Portúgalskir kaupmenn rekist á það í Malakka á 16. öld. Talið er að portúgalskir kaupmenn hafi borið nafnið til Evrópu. Það var fyrst skráð á ensku sem Giapan. Nihonkoku (日本国), er formlegt heiti Japans og þýðir í raun „japanska ríkið“.

Saga Japans

Fornleifarannsóknir benda til þess að búseta manna í Japan hafi hafist fyrir 500.000 árum, á fyrri hluta fornsteinaldar. Á ísöldum síðustu milljón ára hefur Japan tengst meginlandi Asíu (við Sakhalin í norðri og líklegast Kyūshū í suðri), sem hefur auðveldað búferlaflutninga manna, dýra og plantna til Japanska eyjaklasans, frá því svæði sem er nú Kína og Tævan. Við lok síðustu ísaldar og með heitara loftslagi tók Jomon-tímabilið (縄文時代) við u.þ.b. 14.500 f.Kr. Leirker frá Jomon tímabilinu í Japan eru meðal þeirra elstu í heiminum. Þegar tók að líða á Jamon tímabilið tóku að myndast smáþorp víða í Japan. Samkvæmt klassískri goðafræði Japans, var Japan sett á laggirnar á 7. öld fyrir Krist af Jimmu keisara, sem samkvæmt goðafræðinni á ættir sínar að rekja til guða. Um 300 fyrir Krist tók við Yayoi-tímabilið (弥生時代) sem markaði endalok Jomon tímabilsins. Tímabilið einkenndist af áhrifum frá asíska meginlandinu, til dæmis barst til Japans þekking á hrísgrjónarækt og þekking á bronsgerð. Jafnframt voru miklir búferlaflutningar frá mörgum hlutum Asíu til Japans á því tímabili. Almennt er samt talið víst að einhver tímann um 300 e.Kr. hafi Yamatoættin sameinað eyjarnar Honshū, Shikoku, Kyūshū og hugsanlega einhvern hluta Kóreuskaga og að það hafi verið upphafið að sameiningu Japans. Á 5. og 6. öld tóku Japanir upp kínverska ritkerfið og búddisma, fyrst gegnum Kóreuskaga en síðar beint frá Kína. Keisararnir voru aðeins að nafninu til stjórnendur, en gegndu í raun aðeins trúarlegu hlutverki. Raunverulegt vald var í höndum hirðar aðalsmanna sem höfðu arfgeng lénsréttindi. Árið 794 tók við Fujiwara fjölskyldan og Kammu keisari, hann reisti nýja höfuðborg (áður var Nara höfuðborgin), Heian-kyo (heitir nú Kyoto). Fujiwara fjölskyldan efldi veldi sitt með einokun og gifti meðlimi ættarinnar inn í keisarafjöldskylduna til að halda áfram völdum. Það gerðist iðulega að keisarinn sagði af sér og útnefndi yngri mann, ættingja Fujiwara, keisara. Fyrrverandi keisari gekk svo í klaustur og stjórnaði á bakvið tjöldin. Slíkur háttur var á lengi vel, en upp úr 900 fóru margir aðalsmenn, sem ekki höfðu mikil völd innan hirðarinnar, að hætta að sætta sig við hætti Fujiwara fjölskyldunar og settust að í héruðum þar sem þeir tóku sér völd og eignuðu sér landsvæði. Til að verja eigin landsvæði mynduðu þeir bændaheri, sem seinna kölluðust samúræjar. Þetta varð tilefni margra bardaga og hafði mikil áhrif á keisaraveldið. Loks árið 1185, sigruðu bræðurnir Yoshitsune og Yoritomo úr Minamoto fjölskylduni Taira fjölskylduna (sem þá var orðin voldugasta fjölskylda Japans) eftir langar erjur, og komu á sjogúnstjórn (herríkisstjórn, 幕府). Yoshitsune varð fyrsti einráði sjogúninn. Sjogúnstjórnin bar heitið Kamakura Sjogúnstjórnin (鎌倉幕府). Yoshitsune gerði ýmislegt til að bæta hag samúræja sinna og átti mikinn þátt í að skapa menninguna í kringum þá. Erfingjar Yoshitsune voru samt síðar meir aðeins einráðir opinberlega, en Hoju fjölskyldan stjórnaði í raun öllu á bakvið tjöldin. Þetta stjórnskipulag hélst lengi vel, eða allt til ársins 1854 þegar Bandaríkjamenn voru farnir að beita Japan þrýstingi til að opna hafnir sýnar fyrir erlendum kaupmönnum, en Japan hafði þá verið einangrað síðan snemma á 17. öld. Á Meijitímabilinu (1868 til 1912) voru lénsréttindi afnumin og Japanska ríkið tók á sig mynd kapítalískra ríkja í Evrópu.

Stjórnmál

Í Japan er stjórnarskrárbundin konungsstjórn með tveggja deilda þingi, sem kallast Kokkai (国会). Japan hefur konunglega fjölskyldu, þar sem keisarinn er hæst settur en samkvæmt núverandi stjórnarskrá hefur hann engin raunveruleg völd heldur þjónar hann eingöngu formlegu hlutverki þjóðhöfðingja. Framkvæmdavaldið, sem heyrir undir Kokkai, er í höndum ríkisstjórnar sem samanstendur af forsætisráðherra og öðrum ráðherrum, sem verða að vera almennir borgarar. Forsætisráðherrann er meðlimur í Kokkai. Forsætisráðherra hefur vald til að ráða og reka ráðherra, en ráðherrarnir þurfa flestir að vera meðlimir í Kokkai.

Héraðsskipan Japans

forsætisráðherra Japan er skipt upp í 47 héruð (raðað eftir ISO 3166-2):

- Hokkaidō
- Aomori
- Iwate
- Miyagi
- Akita
- Yamagata
- Fukushima
- Ibaraki
- Tochigi
- Gunma
- Saitama
- Chiba
- Tókýó
- Kanagawa
- Niigata
- Toyama
- Ishikawa
- Fukui
- Yamanashi
- Nagano
- Gifu
- Shizuoka
- Aichi
- Mie

- Shiga
- Kyoto
- Osaka
- Hyogo
- Nara
- Wakayama
- Tottori
- Shimane
- Okayama
- Hiroshima
- Yamaguchi
- Tokushima
- Kagawa
- Ehime
- Kochi
- Fukuoka
- Saga
- Nagasaki
- Kumamoto
- Oita
- Miyazaki
- Kagoshima
- Okinawa
Röðin á héruðunum er frá norðri til suðurs, sem er almennt notuð í Japan.

Landafræði

Okinawa Japan er stórt eyríki sem teygir sig eftir hluta af Kyrrahafsströnd Asíu. Stærstu eyjarnar heita Hokkaidō, Honshū (stærst og fjölmennust), Shikoku, og Kyūshū. Ryukyu eyjaklasinn teygir sig yfir 1000 km til suðvesturs frá Kyūshū alla leið til Tævan. Að auki eru um 3000 smærri eyjar sem tilheyra Japan. 73% landsins telst sem fjalllendi, fjallgarðar liggja eftir eyjunum endilöngum, venjulega frá norðri til suðurs. Hæsta fjallið er Fuji fjall sem er 3.776 metra hátt og er virkt eldfjall. Hið takmarkaða flatlendi er mjög þéttbýlt, Tókíó og nágrannaborgir mynda þannig langstærsta samfellda þéttbýlissvæði á jörðinni með yfir 33 milljónir íbúa. Japan er staðsett á hinum svonefnda eldhring sem umlykur Kyrrahaf og er mjög virkt jarðskjálfta og eldfjalla svæði. Stórir jarðskjálftar geta riðið yfir hvar sem er í Japan og má reikna með nokkrum slíkum á hverri öld. Á 20. öldinni urðu verstu skjálftarnir annarsvegar árið 1923 í nágrenni Tókíó sem kostaði 140.000 mannslíf og svo aftur 1995 við Kobe þar sem yfir 6000 manns létust. Jarðhiti er nokkur í Japan og víða má finna heitar uppsprettur og í kringum þær sumar hafa verið byggð böð og heilsuhæli, ekki ósvipað Bláa lóninu á Íslandi.

Tengt efni


- Japönsk menning
- Matarprjónar
- Hokusai

Tenglar


- [http://www.japan-guide.com/ Japan-Guide.com] Allt milli himins og jarðar um Japan
- [http://www.cia.gov/cia/publications/factbook/geos/ja.html CIA Factbook: Japan] Flokkur:Japan Flokkur:Konungsríki als:Japan ja:日本 ko:일본 ms:Jepun simple:Japan th:ประเทศญี่ปุ่น zh-min-nan:Ji̍t-pún

Sól

Sól getur átt við:
- MannsnafnSól.
- Starnfræðilega fyrirbærið Sól.


Landamæralaust land

Landamæralaust land er eyríki sem deilir ekki eyjunni eða eyjunum sem það er staðsett á með öðru landi, dæmi um land sem er eyríki en ekki landamæralaust er Írska lýðveldið (deilir eyjunni með Bretlandi), stundum er umdeilt er hvort sum lönd eru landamæralaus eða eyríki, eitt slíkt tilfelli er Kúba en Bandaríkin hafa yfirráð yfir Guantanamo-flóa á Kúbu. Flokkur:Landafræðihugtök

Austur

] Austur er ein af höfuðáttunum fjórum. Austur er andspænis vestri og er á áttavita táknuð með 90°, á venjulegu korti er austur til hægri. Stefnuásinn austur-vestur er hornréttur á stefnuásinn norður-suður. Flokkur:Höfuðáttir ja:東 simple:East

Portúgal

Lýðveldið Portúgal er land í Suðvestur-Evrópu á vesturströnd Íberíuskagans. Portúgal á landamæriSpáni og strönd þess liggur að Atlantshafi. Nokkrir eyjaklasar á Atlantshafi tilheyra einnig Portúgal, þeirra stærstir eru Azoreyjar og Madeira. Sumir telja nafn landsins koma úr latnesku, Portus Cale, sem þýðir falleg höfn á meðan aðrir telja það koma frá aröbum, sem eitt sinn réðu landinu. Samkvæmt því er upphaflegt heiti landsins Portugalia, sem einfaldlega þýðir appelsína. Á 15. og 16. öld var Portúgal efnahagslegt, stjórnmálalegt og menningarlegt stórveldi þegar yfirráðasvæði þess teygði sig um allan heiminn. Veldi þessi hnignaði hins vegar nokkuð hratt eftir að önnur nýlenduveldi komu til sögunnar. Portúgal dagsins í dag á rætur sínar að rekja til byltingar árið 1974 þar sem einræðisstjórn landsins var steypt af stóli. Frá því landið gekk í Evrópubandalagið (nú Evrópusambandið) árið 1986 hafa framfarir í landinu verið miklar, þrátt fyrir að landið sé enn annað af tveimur fátækustu löndum Vestur-Evrópu.

Saga landsins

Um þúsund árum fyrir Krist gerðu Keltar innrás í Portúgal frá Mið-Evrópu og blönduðust þeim sem fyrir voru í landinu, íberum. Grískir landkönnuðir nefndu landið „Ophiussa“ (gríska fyrir „land naðranna“), sennilega þar sem innfæddir tilbáðu nöðrur. Árið 238 f.Kr. réðu Karþagómenn yfir íberíuströndinni. Frá þeim tíma réðu nokkrir ættbálkar yfir svæðinu, þeirra helstri Lúsitaníumenn, sem bjuggu á milli ánna Douro og Tagus, og Kalaicianir sem lifðu norður af ánni Douro ásamt öðrum ættbálkum. Fönikíumenn stofnuðu einnig nýlenduna Conii í suðurhluta landsins og síðar námu Keltar land í Alentejo-svæðinu í suðurhluta landsins. Árið 219 f.Kr. réðust fyrstu rómversku hersveitirnar inn á Íberíuskagann og hröktu Karþagómenn burtu í púnversku stríðunum. Innan 200 ára höfðu Rómverjar svo náð yfirráðum yfir mestum hluta skagans. Rómverjar treystu vald sitt yfir landinu í suðri næstu áratugina með stuðningi manna í Conii. Árið 194 f.Kr. hófst hins vegar uppreisn í norðurhluta landsins þar sem Lúsitaníumenn og aðrir ættbálkar héldu aftur af Rómverjum, náðu af þeim landi og réðust inn í höfuðborg Conii til að hefna fyrir stuðning þeirra við Róm. Viriathus, sem sagður er hafa fæðst í fjöllum Lorica (Loriga) í miðhluta landsins, hrakti svo Rómverja á brott úr landinu. Róm sendi margar herdeildir til að kljást við uppreisnaröflin og koma aftur á stjórn en tókst það ekki fyrr en þeir náðu að telja Lúsítaníumenn til að drepa sinn eigin leiðtoga. Lúsitaníu óx hins vegar ásmeginn og margar af þeim borgum Portúgal sem enn standa voru stofnaðar á þessum tíma. Árið 73 e.Kr. hlaut Lúsitanía stöðu rómverks héraðs. Á fimmtu öldinni gerðu germanskir þjóðflokkar, barbarar, innrás á Íberíuskagann. Einn af þeim, Suevi þjóðflokkurinn, lagði hins vegar niður vopn og stofnaði konungsríki, með Bracara Augusta sem höfuðborg, á svæði sem svarar u.þ.b. Portúgals í dag. Síðar náðu Vísigotar yfirráðum yfir þessu konungsríki og sameinuðu skagann. Árið 711 réðust márar inn á skagann og gerðu þar með út um konungsríki vísigota. Margir fyrirmenn í röðum vísigota flúðu til Asturian hásléttunnar (þar sem nú er Spánn) þaðan sem þeir ráðgerðu að endurheimta landið úr höndum mára. Árið 868 náði Vímara Peres greifi yfirráðum á svæðinu milli Minho og Douro ánna (þar á meðal yfir þeirri borg sem varð fyrsta höfuðborg landsins, Portucale - þar sem í dag er borgin Porto). Landið varð þar með þekkt sem Portucale (þ.e. Portugal).

Landsvæði

Skipting landsins er nokkuð flókin. Því er skipt í 308 sveitarfélög (concelhos) og þeim er skipt í yfir 4.000 hreppa (freugesias). Þeir falla síðan í yfirflokka þar sem sumir hafa að gera með stjórnun þeirra en aðrir með hlutverk (s.s. ferðamannasvæði). Mikilvægasta skiptingin var gerð árið 1976, þegar landinu var skipt í Portúgal meginlandsins og eyjaklasana tvo (Azoreyjar og Madeira) sem í dag njóta sjálfsstjórnar. Þéttbýli er skipt í þrjá hluta:
- Stórborgarsvæði (Grandes Áreas Metropolitanas) - Borgir/landsvæði með yfir 350.000 íbúa
  - Lissabon - 2.547.665
  - Porto - 1.509.958
  - Braga, Minho - 754.830
  - Aveiro - 460.157
  - Coimbra - 430.845
  - Faro, Algarve - 391.819
  - Viseu - 354.162
- Þéttbýliskjarnar (Comunidades Urbanas) - yfir 150.000 íbúar.
  - Oeste, Vale do Sousa, Leiria, Lezíria do Tejo, Baixo Alentejo, Trás-os-Montes, Centro Alentejo, Baixo Tâmega, Douro, Médio Tejo, Beiras, Beira Interior Sul og Alto Alentejo;
- Bæir (Comunidades Intermunicipais) - (undir 150.000 íbúar
  - Pinhal og Vale do Minho.

Menntakerfi landsins

Menntakerfi landsins er skipt niður í Forskóla (Pré-Escolar) fyrir börn undir 6 ára aldri, Grunnskóla (Ensino Básico), sem samanstendur af þremur stigum sem samtals telja 9 ár, Framhaldsskóla (Ensino Secundário) sem tekur þrjú ár og Háskóla og tækniskóla (Ensino Superior). Menntun er ókeypis og 9 ára skólaganga er skylda. Frumvarp til laga hefur verið lagt fram í Portúgalska þinginu um að börn verði að ganga í skóla þar til þau nái fullorðinsaldri (18 ára aldri). 6,7% þjóðarinnar er ólæs, nær eingöngu eldra fólk. Fyrsti háskóli Portúgals– The Estudo Geral (Í dag Háskólinn í Coimbra) – var stofnaður þann 1. mars, 1290 í Lissabon samkvæmt tilskipun frá Dinis konungi og er næstelsti háskóli í Evrópu. Háskólinn var fluttur til Coimbra árið 1308, og fluttist svo nokkrum sinnum aftur á milli borganna tveggja allt til ársins 1537. Árið 1559 var Háskólinn í Évora stofnaður af Henrique kardinála sem síðar átti eftir að verða konungur Portúgals og laut skólinn stjórnar Jesúíta. Á 18. öld lokaði Marquês de Pombal háskólanum í Évora í tilraun til að minnka völd Jesúíta í landinu. Á 19. öld voru mýmargir skólar stofnaðir, t.a.m. Tækniskólinn (Escola Politécnica) og Iðnskólinn (Escola Industral), báðir staðsettir í Lissabon. Þegar lýðveldi skaut rótum í landinum voru margir þessara skóla innlimaðir í Háskólann í Lissabon og Háskólann í Portó. Á 6. áratuginum var Kaþólski háskólinn stofnaður, og var hann fyrsti skólinn sem ekki var rekinn af Portúgalska ríkinu. Mesta fjölgun háskóla varð þó á 7. áratugi 20. aldar þegar skólar líkt og Háskólinn í Aveiro og Háskólinn í Minho voru stofnaðir, ásamt mörgum einkaskólum.

Portúgölsk stjórnvöld

Stjórnvöld landsins samanstanda af forseta lýðveldisins, þinginu, ráðherrum (ríkisstjórninni) og dómskerfinu. Forseti landsins, sem jafnframt er yfirmaður hers landsins, er kosinn til fimm ára í senn af þjóðinni. Völd forsetans felast í skipun forsætisráðherra, sem jafnframt er kosinn af þinginu, sem og annarra ráðherra, sem tilnefndir eru af forsætisráðherranum. Forsetinn getur leyst upp ríkisstjórnina, líkt og gerðist í upphafi ársins 2005, sem og þingið. Þessi völd eru þó háð takmörkunum þar sem forsetinn verður fyrst að ráðfæra sig við ríkisráðið sem samanstendur af sex fyrrum forsetum lýðveldisins og tíu borgurum, fimm sem forsetinn tilnefnir og fimm sem tilnefndir eru af þinginu. Algengast er að forsetinn beiti valdi sínu þegar hann samþykkir eða hafnar löggjöfum þingsins. Þingið (Assembleia da República á portúgölsku) starfar í einni málstofu og samanstendur af 230 þingmönnum sem þjóna til fjögurra ára í senn. Hlutverk þingsins er að setja lög í landinu og forseti þess er handhafi forsetavalds að forsetanum fjarverandi. Forsætisráðherra landsins fer fyrir ríkisstjórninni og tilnefnir ráðherra. Þegar ný ríkisstjórn er kjörin hefur hún þær skyldur að útlista stefnu sína í stórum dráttum og leggja hana fyrir þingið. Ef meirihluti þingsins hafnar ekki stefnu forsætisráðherrans telst það staðfesting á ríkisstjórninni. Dómstólar landsins starfa á nokkrum stigum, þar sem hæstiréttur fer með æðsta dómsvald. Tveir stjórnmálaflokkar eru ráðandi í landinu, sósíalistaflokkurinn PS (Partido Socialista) og sósíaldemókratar PSD (Partido Social Democrata, sem báðir fylgja sömu stefnu í grunninn. Báðir flokkarnir styðja nána samvinnu evrópulanda og leggja mikla áherslu á frjálsan markað og félagslega þætti. Aðrir flokkar sem eiga sæti á þingi eru: kommúnistar PCP (Partido Comunista Português), alþýðuflokkurinn PP (Partido Popular), vinstriflokkurinn BE (Bloco de Esquerda) og umhverfissinnar PEV (Partido Ecologista Os Verdes). Allir eru þeir vinstri flokkar utan alþýðuflokkinn, PP. Árið 2005 vann sósíalistaflokkurinn stórsigur í kostningum og hefur hreinan meirihluta á þingi (121 þingsæti). Forsætisráðherra landsins er José Sócrates. Portúgalskur almenningur er afar hallur undir Evrópusambandið og samstarf evrópuþjóða, en 60% landsmanna segjast styðja sambandið. Trú er sterk í landinu sem sést einna best á því að lög gegn fóstureyðingum eru ströng og fóstureyðingar aðeins leyfðar ef um nauðgun er að ræða eða þar sem líf móðurinnar kann að vera í hættu. Árið 1998 var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um málið, þar sem 49% þjóðarinnar vildi leyfa fóstureyðingar og 51% var á móti. Allar líkur eru á því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin árið 2006. Samkynhneigðir njóta nú aukinna réttinda en aðeins eftir tilskipun frá Evrópusambandinu þar um.

Menning landsins

Menning Portúgals er undir áhrifum af þeim mörgu straumum og stefnum sem landið hefur orðið fyrir á síðustu 1000 árum, ekki hvað síst frá nýlendum sínum. Þetta sést hvað best í þeim mörgu hátíðum sem eiga rætur sínar að rekja til heiðinna siða og rómverja en sem hafa þróast yfir í hátíðir til heiðurs kristnum dýrlingum. Portúgölsk tónlist er samsuða margra strauma. Þekktasta form hennar er án efa Fado, þunglyndisleg og tregablandin tónlistarstefna sem óx og dafnaði bæði meðal lægri stétta landsins sem og í háskólasamfélagi þess. Það orð sem best lýsir tónlistinni er portúgalska orðið saudade. Orðinu saudade (sem helst væri þýtt með hryggð) er ætlað að lýsa þeirri sammannlegri tilfinningu sem felst í því að vera ástfanginn af einhverjum eða einhverju sem maður er fjarri. Þrátt fyrir að stefnan teljist portúgölsk á hún væntanlega uppruna sinn í afrískum þrælasöngvum ásamt tónlist portúgalskra sjómanna, auk þess sem hún hefur orðið fyrir áhrifum af arabískum söngvum. Fado skiptist í tvær meginstefnur: Þá sem á uppruna sinn í höfuðborginni, Lissabon, og þá sem má rekja til háskólabæjarins Coimbra. Fyrrnefnda stefnan var talin tónlist alþýðunnar og flytjendurnir voru yfirleitt konur, á meðan sú síðari var tók sig alvarlegar, var hástemmdari og yfirleitt flutt af karlmönnum. Frægustu fadosöngvarar landsins eru Amália Rodrigues, Mariza, Ana Moura, Cristina Branco, auk hljómsveitarinnar Madredeus. Vinsælasta tónlistin í dag er annars popp- og rokktónlist ásamt tónlist sem kallast hipp hopp tuga (sambland hipp hopps, afríkanskrar tónlistar og reggís) þar sem flytjendurnir eru aðallega af afríkönskum uppruna, og hins vegar pimba, einföld alþýðutónlist sem aðallega er vinsæl í smábæjum og þorpum landsins. Bókmenntir Portúgals hafa þróast frá 13. öld, þegar hljóðfæraleikarar ferðuðust um og fluttu kvæði fyrir þá sem vildu heyra. Dáðasti rithöfundur landsins er sennilega Luís de Camões (1524 – 1580) sem skrifaði söguljóðið Os Lusíadas á ferðum sínum um Afríku og Asíu. Annað vinsælt ljóðskáld er Fernando Pessoa (1888 – 1935) sem skrifaði ljóð undir mörgum dulnefnum þar sem hann spann upp karaktera sem jafnvel rifust sín á milli á prenti. Meðan annarra frægra rithöfunda landsins eru Almeida Garrett, Alexandre Herculano, Eça de Queirós, Sophia de Mello Breyner Andresen, António Lobo Antunes og José Saramago, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1998, fyrstur portúgalskra rithöfunda. Byggingarlist landsins hefur orðið fyrir miklum utanaðkomandi áhrifum í gegnum aldirnar og því erfitt að staðsetja hana. Ýmsir borgarhlutar, og jafnvel heilu borgirnar (líkt og Sintra) eru á heimsminjaskrá UNESCO. Portúgal státar af einum fremsta arkitektaskóla heims, sem einfaldlega kallast Escola do Porto, eða Portóskólinn.

Matarmenning

Hvert landsvæði hefur sína sér rétti sem oftast innihalda kjöt eða fisk. saltfiskur er sérstaklega vinsæll í landinu (bacalhau á portúgölsku) enda sagt að Portúgalir kunni 365 leiðir til að elda saltfisk. Bacalhau à Brás og Bacalhau à Gomes de Sá eru vinsælustu aðferðirnar. Einnig er mikið um sætindi, sem oftar en ekki eru drukkin með sterku kaffi. Portúgalir hafa einnig þróað sína eigin skyndibitamenningu, Francesinha þar vinsælasti rétturinn (nafnið merkir lítil frönsk stúlka), gerður úr brauði, pylsum, kjöti og sósu sem samanstendur af viskíi og bjór. Portúgölsk vín hafa verið flutt út síðan á dögum rómverja. Þrátt fyrir að hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna er sagt að portúgalir kunni ekki að markaðsetja vín enda eru þau illfáanleg í mörgum löndum. Helstu vínin eru Vinho Verde (óþroskað hvítvín), Vinho Alvarinho (sérstök gerð hvítvíns) og Vinho do Alentejo (vín frá Alentejo svæðinu, oft talin þau bestu í Portúgal). Portúgal, nánar tiltekið norðurhluti landsins í kringum Porto og ána Douro, er einnig þekktur fyrir púrtvínsgerð, þó svo flestar púrtvínsverksmiðjur landsins séu í eigu Englendinga.

Íþróttir

Fótbolti er langvinsælasta íþrótt landsins, enda hefur landið yfirleitt verið ofarlega á heimslista FIFA. Portúgal hefur alið af sér marga þekkta fótboltamenn, þá helsta: Luís Figo, Eusébio, Rui Costa, Pauleta og Cristiano Ronaldo. Hjólaskautahokkí er einnig vinsælt, enda Portúgal það land sem hefur unnið flesta titla á því sviði. Golf er einnig mikið stundað í landinu, aðallega í suðurhlutanum í kringum ferðamannakjarna, sem og blak og strandfótbolti.

Landamæradeilur við Spán

Portúgal á í landamæradeilum við nágranna sinn, Spán, um Olivença svæðið í suðurhluta landsins (Olivenza á spænsku). Árið 1815 samþykktu Spánverjar að skila svæðinu aftur til Portúgala en það hefur ekki verið gert enn þann dag í dag og ítreka Portúgalir reglulega þá kröfu sína að landssvæðinu verði skilað. Síðast var fjallað um málið á portúgalska þinginu árið 2004. Samkvæmt alþjóðalögum telst Olivença til Portúgals, þrátt fyrir að hafa verið undir spænskri stjórn frá árinu 1801. Flokkur:Portúgal als:Portugal ja:ポルトガル ko:포르투갈 ms:Portugal simple:Portugal th:สาธารณรัฐโปรตุเกส zh-min-nan:Portugal

16. öld

Aldir: 14. öldin - 15. öldin - 16. öldin - 17. öldin - 18. öldin 16. öldin er tímabilið frá byrjun ársins 1501 til enda ársins 1600.

Ár 16. aldar

1501 1502 1503 1504 1505 1506 1507 1508 1509 1510 1511 1512 1513 1514 1515 1516 1517 1518 1519 1520 1521 1522 1523 1524 1525 1526 1527 1528 1529 1530 1531 1532 1533 1534 1535 1536 1537 1538 1539 1540 1541 1542 1543 1544 1545 1546 1547 1548 1549 1550 1551 1552 1553 1554 1555 1556 1557 1558 1559 1560 1561 1562 1563 1564 1565 1566 1567 1568 1569 1570 1571 1572 1573 1574 1575 1576 1577 1578 1579 1580 1581 1582 1583 1584 1585 1586 1587 1588 1589 1590 1591 1592 1593 1594 1595 1596 1597 1598 1599 1600 Flokkur:16. öldin ja:16世紀 ko:16세기

Ísöld

Ísöld er jarðsögulegt tímabil þar sem þykkar jökulbreiður hylja stór landsvæði. Slík tímabil geta staðið í nokkrar milljónir ára og valdið miklum breytingum á yfirborði meginlanda. Allnokkrar ísaldir hafa átt sér stað í sögu Jarðar. Sú elsta sem þekkt er átti sér stað á forkambrískum tíma fyrir meira en 570 milljónum ára. Síðustu tímabil mikilla jökulframrása áttu sér stað á Pleistósen tímabilinu sem er almennt talið hafa hafist fyrir um 1,8 milljónum ára (þetta er þó umdeilt) og lokið fyrir 10 þúsund árum. Minna kuldakast og tímabil jökulframrása hefur verið nefnt "Litla Ísöld", en það hófst á 16. öld og var viðvarandi næstu þrjár aldir þar á eftir. "Litla Ísöld" náði hámarki árið 1750 en þá voru jöklar í mestu framrás síðan á hinni Kvarteru ísöld. Flokkur:Jöklafræði Flokkur:Jarðsöguleg tímabil

Dýr



- Svampdýr (Porifera)
- Kambhveljur (Ctenophora)
- Holdýr (Cnidaria)
- Flögudýr (Placozoa)
- Bilateria
  - Acoelomorpha
  - Orthonectida
  - Rhombozoa
  - Myxozoa
  - Nýmunnar (Deuterostomia)
    - Seildýr (Chordata)
    - Kragaormar (Hemichordata)
    - Skrápdýr (Echinodermata)
    - Pílormar (Chaetognatha)
  - Ecdysozoa
    - Hnykkhöfðar (Kinorhyncha)
    - Brynormar (Loricifera)
    - Maðkamæður (Priapulida)
    - Þráðormar (Nematoda)
    - Strengormar (Nematomorpha)
    - Klóberar (Onychophora)
    - Bessadýr (Tardigrada)
    - Liðdýr (Arthropoda)
  - Platyzoa
    - Flatormar (Platyhelminthes)
    - Sýlingar (Gastrotricha)
    - Hjóldýr (Rotifera)
    - Krókhöfðar (Acanthocephala)
    - Kjálkaormar (Gnathostomulida)
    - Micrognathozoa
    - Cycliophora
  - Lophotrochozoa
    - Sæbelgir (Sipuncula)
    - Ranaormar (Nemertea)
    - Kambormar (Phoronida)
    - Mosadýr (Ectoprocta)
    - Stilkormar (Entoprocta)
    - Armfætlur (Brachiopoda)
    - Lindýr (Mollusca)
    - Liðormar (Annelida) Dýr eru hópur lífvera flokkaðir sem meðlimir af dýraríkinu. Dýr eru ófrumbjarga fjölfrumungar, færir um hreyfingu og samanstanda af frumum sem hafa ekki frumuveggi (dýrsfrumur).

Kína

Kína (hefðbundin kínverska: 中國, einfölduð kíverska: 中国, Hanyu Pinyin: Zhōngguó, Wade-Giles: Chung-kuo) er menningarsvæði á meginlandi Austur-Asíu ásamt nokkrum eyjum undan ströndinni sem síðan 1949 hefur verið skipt á milli Alþýðulýðveldisins Kína (nær yfir meginlandið auk Hong Kong og Makaó) og Lýðveldisins Kína (nær yfir Tævan auk nærliggjandi eyja). Kína er ein af elstu samfelldu siðmenningum á Jörðinni og ritkerfið sem þar var notað er það elsta sem var í sífelldri notkun. Saga þess hefur einkennst af stríði og friði til skiptis og blóðugum erjum mismunandi keisaraætta. Nýlendustefna Evrópumanna, innrás Japana og borgarastríð bitnaði illa á Kína á 19. og 20. öld og stuðlaði að núverandi skiptingu landsins. Íbúar svæðisins telja vel yfir einn milljarð og eru flestir af þjóð Han Kínverja. Tungumál þeirra er kínverska sem notast að mestu við sama ritmálið en skiptist í margar talmáls-mállýskur. Flokkur:Kína Flokkur:Austur-Asía ja:中国 zh-min-nan:Tiong-kok ms:China simple:China zh-min-nan:Tiong-kok

Jomon

Jomon (縄文時代) er tímabil í sögu Japans, sem spannar tíma frá 14.500 f.Kr. til 300 f.Kr. Jamon þýðir „strengjamynstur“ og er komið af mynstrunum sem sjást á leirkerum frá þessu tímabili. Flokkur:Japönsk tímabil ja:縄文時代

Soul Blade

Soul Edge (Soul Blade in Europe, North America and Australia) is the first installment in the Soul series of fighting games. It was initially released in the arcades in 1995. It was later ported in 1996 to the Sony PlayStation where it is usually referred to as Soul Edge Version 2. The PlayStation version was released in North America under the Soul Blade title. Soul Edge has been largely overshadowed by its sequel, Soul Calibur, which has been the moniker of the series since 1999. It was the second 3D fighter to feature characters that fought with weapons. While putting weapons in fighters was not a new concept (Samurai Shodown is an example of a 2D fighter with weapons). Apart from the aesthetic benefits, giving the characters weapons allows for a greater diversity between them, meaning there is someone for every play style. One excellent concept of weapon-based combat implemented by Namco is the major factor that range has in gameplay. The slower, longer ranged characters try to deliver their heavy blows from a distance whereas the quicker, faster characters try to get in as close as possible and deliver quick-hitting attacks. All characters have moves that work at varying ranges though, so longer ranged characters can also hit surprisingly quickly and lesser ranged characters will get in the opponent's face within the blink of an eye if the enemy is careless. Soul Edge is the name of the demonic sword at the center of the Soul series' story. Currently, it is in Siegfried's possession, but when the series began, it belonged to Cervantes.

The Soul series

All games in the series before Soul Calibur III were originally arcade games, subsequently being ported to home consoles as follows :
- Soul Edge (1995) - Arcade only.
- Soul Edge Version 2 (1996) - Arcade and PlayStation (Released as Soul Blade in USA and Europe).
- Soul Calibur (1999) - Arcade and Sega Dreamcast.
- Soul Calibur II (2003) - Arcade, PlayStation 2, Xbox and Nintendo GameCube.
- Soul Calibur III (2005) - PlayStation 2. The ported versions are known for their extra features, including new characters, weapons, new costumes, art galleries, martial arts demonstrations and involved single-player modes, when compared to the original arcade versions. For example, Seung Han Myong was not featured in the arcade version of Soul Edge.

The original cast of characters

Soul Edge introduced many characters still familiar to players today, especially the series' main character--who serves as both a protagonist and an antagonist throughout the series' history--Siegfried Schtauffen; as well as its token samurai and ninja, Mitsurugi and Taki, respectively. The original roster of eight, available from the second the player opens the package of the first game in the series are as follows:
- Li Long - Nunchaku
- Seong Mi-na (spelled Seung Mi Na until Soul Calibur III) - Zhǎnmǎdāo
- Heishiro Mitsurugi - Katana
- Nathaniel "Rock" Adams - Moon Axe
- Siegfried Schtauffen - Zweihänder
- Sophitia Alexandra - Sword and Shield
- Taki - Tantō
- Voldo - Dual Jamadhar Katars Also available were several characters that the players must unlock to use, also as follows:
- Cervantes de Leon - 2 Long Swords
- Seong Han-myeong (spelled Seung Han Myong until Soul Calibur III) - Dao (Soul Blade only)
- Hwang Seong-gyeong (spelled Hwang Sung Kyung until Soul Calibur III) - Dao
- Soul Edge - 2 Long Swords (Soul Blade only) One of the series' main attractions was that it was one of the first fighting games to feature detailed accounts of the individual fighters' motivations and common relations in their quest to achieve a common goal for varying purposes. Many players appreciate Namco's ability to introduce new characters to the series with interconnected storylines such that every character is linked to another somehow, with connections growing larger as the series progresses and the characters accomplish new tasks in the events of the story.

Box art

Image:Soul Edge - Front - JAP.jpg|Box Art of Soul Edge for PS1 JAP. Image:Soul Blade - Front - NTSC.jpg|Box Art of Soul Blade for PS1 NTSC. Image:Soul Blade - Front - PAL.jpg|Box Art of Soul Blade for PS1 PAL.

Taglines (spoken by narrator in game)

(Note: the following is based on the arcade version) "Transcending history and the world, a tale of souls and swords, eternal retold" (title screen) "The heroes finally meet under the star of destiny" (gameplay demonstration) "Welcome to the stage of history" (character selection screen)

External links


- [http://www.soularchive.jp/tmr/index.htm Soul Archive]
- [http://www.klov.com/game_detail.php?letter=S&game_id=9635 Soul Edge] entry on the Killer List of Videogames
- [http://www.mobygames.com/game_group/sheet/gameGroupId,390/ Soul Edge at MobyGames] Category:1995 arcade games Category:1996 computer and video games Category:Arcade games Category:PlayStation games Category:Versus fighting games Category:Computer and video game franchises Category:Namco games
-
ja:ソウルエッジ

programy hosting wadysawowo pokoje Kabarety realplayer










































:: RELATED NEWS ::
Kartago
Karthago (også skrevet Kartago, fra fønikisk Kart-Hadascht, «nybyen», skrevet uten vokaler på punisk som Qrthdst) var en oldtidsby ved kysten av Nord-Afrika øst for Tunis-sjøen, i dagens Tunisia, etter tradisjonen anlagt av fønikere fra Tyros i det 9. århundre f.Kr. Den skal i sin glanstid ha hatt opptil 700.000 innbyggere. Byen, som var en betydelig sjømakt, ble ødelagt av romerne
Ekkokardiografi
Ekkokardiografi, undersøkelse av hjertet med ultralyd. Kan være diagnostisk, eller for å veilede terapeutiske intervensjoner. Kalles i dagligtale på sykehus ofte ekko-Doppler, ekko for det todimensjonale strukturbildet, og Doppler for hastighetsmålingene. Hjertet kan sees som to-dimensjonale skiver, som et tredimensjonalt volum eller kun langs en isolert stråle. Dette kan v
Helmut Recknagel
Helmut Recknagel (født 20. mars 1937) er tysk skihopper, en av de mestvinnende gjennom alle tider. Recknagel var den første tyske (og ikke-skandinaviske) hopperen som tok OL-gull i skihopping. I 1960 vant han i Squaw Valley. Som de fleste på den tiden hoppet han med armene strekt ut foran seg. I
Christian Andreas Doppler
Christian Andreas Doppler (født 29. november 1803 i Salzburg, død 17. mars, 1853 i Venezia var en østerriksk fysiker og matematiker, mest kjent for å ha framlagt hypotesen om det som siden er kjent som Dopplereffekten.
Doppler
Christian Andreas Doppler (født 29. november 1803 i Salzburg, død 17. mars, 1853 i Venezia var en østerriksk fysiker og matematiker, mest kjent for å ha framlagt hypotesen om det som siden er kjent som Dopplereffekten.
Camilla Collett
Camilla Collett (født Wergeland) (født 23. januar 1813 i Kristiansand, død 6. mars 1895 i Oslo), kjent som forfatter og kvinnesaksforkjemper. Datter av Nicolai Wergeland og hustru Alethe Dorothea Wergeland,
Norges ingeniørorganisasjon
Norges ingeniørorganisasjon (NITO) ble stiftet i 1936, da med navnet Norges Ingeniør- og Teknologorganisasjon. I dag er NITO Norges største fagorganisasjon for ingeniører og teknologer med ca 50.000 medlemmer. NITO organiserer i hovedsak ingeniører med treårig høyskoleutdanning. kategori:Norske fagforeninger [http://www.nito.no Norges ingeniørorganisasjon]
Stratosfæren
Stratosfæren er det laget av jordas atmosfære, som ved ekvator ligger mellom 17 km og 50 km høyde over jordoverflaten. Ved polene starter stratosfæren i ca. 8km høyde på grunn av lavere høyde på tropopausen, som kommer de lavere temperaturene i troposfæren der. Stratosfæren er plassert over troposfæren og under canadisk provins. Hovedstaden er Winnipeg og provinsen har 1 162 800 innbyggere (2003). Kategori:Canadiske provinser og territorier zh-min-nan:Manitoba ko:매니토바 주
All Rights Reserved 2005 wikimiki.org